Betri Vinir - Barna námskeið

29.000 kr.

Betri Vinir - Barna Námskeið.

 

Námskeið fyrir börn á aldrinum 3 til 15 ára þar sem lögð er áhersla á örugg og jákvæð samskipti barna við hundana á heimili þeirra. 

Markmið námskeiðsins er að efla skilning barnsins á hegðun, tjáningu og þörfum hundsins, á sama tíma og unnið er að því að auka öryggi og vellíðan hundsins í kringum barnið.

Á námskeiðinu læra börn að lesa í líkamstjáningu hunda, bera virðingu fyrir mörkum þeirra og eiga uppbyggileg samskipti sem stuðla að traustu sambandi.

Einnig er lögð áhersla á að kenna börnum hvernig þau geta komið í veg fyrir óæskilegar aðstæður og brugðist rétt við mismunandi aðstæðum.

Kennari námskeiðsins er Mona, sem er menntaður hundaþjálfari og atferlisþjálfi fyrir börn með margra ára reynslu af starfi með börnum og fjölskyldum. 

Hún leggur áherslu á jákvæðar og hagnýtar aðferðir sem nýtast bæði börnum og hundum í daglegu lífi.

Á námskeiðinu verður að vera foreldri eða forráðamaður með barninu og hundinum, það er aldrei að vita nema að þau læri eitthvað sniðugt líka.

Námskeiðið er 6 verklegir tímar þar sem hundurinn er með í þeim öllum.

 

Leiðbeinandi:

Mona Hadaya-Thornton

Dagskrá

Nánari Upplýsingar

Betri Vinir júní 2026

Tímasetning

09.06.26 - 18:00-19:00 - Þriðjudagur 11.06.26 - 18:00-19:00 - Fimmtudagur 16.06.26 - 18:00-19:00 - Þriðjudagur 18.06.26 - 18:00-19:00 - Fimmtudagur 23.06.26 - 18:00-19:00 - Þriðjudagur 25.06.26 - 18:00-19:00 - Fimmtudagur

Testimonial 1
Testimonial 2
Testimonial 3
Testimonial 4
Testimonial 5
Testimonial 6
Testimonial 7
Testimonial 8